Þjónustuskilmálar Google Play

18. október 2024 (sjá eldri útgáfu)

1. Kynning

Gildandi skilmálar. Takk fyrir að nota Google Play. Google Play er þjónusta sem er veitt af Google Ireland Limited („Google“, „við“ eða „okkur“), með aðsetur að Gordon House, Barrow Street, Dublin 4, Írlandi. Notkun þín á Google Play og forritunum og leikjunum (þar á meðal Android skyndiforritum), kerfisþjónustunum, kvikmyndunum, bókunum, tímaritunum eða öðru stafrænu efni eða þjónustu (kallað einu nafni „efni“) sem eru aðgengileg í gegnum það fellur undir þessa þjónustuskilmála Google Play („þjónustuskilmálar Play“) og þjónustuskilmála Google („þjónustuskilmálar Google“) (einu nafni nefndir „skilmálarnir“). Google Play er þjónusta eins og lýst er í þjónustuskilmálum Google. Ef ósamræmi er á milli þjónustuskilmála Play og þjónustuskilmála Google skulu þjónustuskilmálar Play gilda.

2. Notkun þín á Google Play

Aðgangur að og notkun á efni. Þér er heimilt að nota Google Play til að skoða, finna, horfa á, streyma eða sækja efni fyrir snjalltækið þitt, tölvuna, sjónvarpið, úrið eða annað stutt tæki („tæki“). Til þess að nota Google Play verðurðu að vera með tæki sem uppfyllir tilteknar kröfur varðandi kerfi og samhæfi. Viðbótarkerfiskröfur kunna að eiga við um efni sem er tiltækt á eða gegnum Google Play. Framboð á efni og eiginleikum er breytilegt milli landa og ekki er víst að allt efni sé í boði í þínu landi. Sumu efni kann að vera hægt að deila með fjölskyldumeðlimum. Efni á Google Play er útvegað af Google Commerce Limited, með skráða skrifstofu með aðsetur í 70 Sir John Rogerson's Quay, Dublin 2, D02R296, Írlandi. Slíkt efni kann að vera upprunnið annars staðar frá (til dæmis frá þróunaraðila forrits, bókaútgefanda eða kvikmyndaframleiðanda) („efnisveitan“).

Aldurstakmörk. Til þess að nota Google Play verðurðu að vera með gildan Google reikning („Google reikningur“), sem er háður eftirfarandi aldurstakmörkunum. Ef þú telst vera ólögráða í þínu landi þarftu heimild frá foreldri þínu eða forráðamanni til að nota Google Play og samþykkja skilmálana. Þú verður að fara að öllum aukalegum aldurstakmörkunum sem kunna að gilda um notkun tiltekins efnis eða eiginleika á Google Play. Umsjónarmenn fjölskyldna og fjölskyldumeðlimir verða einnig að uppfylla þessar viðbótarkröfur.

Gjöld þriðju aðila.Þú berð ábyrgð á öllum aðgangs- eða gagnagjöldum þriðja aðila (svo sem netveitu þinnar eða símafyrirtækis) í tengslum við notkun þína og skoðun á efni og Google Play.

Uppfærslur. Google Play, tengd stuðningssöfn eða efni kann að þarfnast uppfærslu, til dæmis vegna villuleiðréttinga, bættrar virkni, viðbóta sem vantar og nýrra útgáfna (í sameiningu kallað „uppfærslur“). Slíkar uppfærslur kunna að vera nauðsynlegar svo þú getir notað Google Play eða fengið aðgang að, sótt eða notað efni. Með því að samþykkja þessa skilmála og nota Google Play samþykkirðu að taka sjálfkrafa við slíkum uppfærslum. Þú getur hugsanlega haft umsjón með uppfærslum á tilteknu efni gegnum stillingarnar á Google Play. Ef það hefur aftur á móti verið ákvarðað að uppfærslan lagfæri mikilvægan öryggisgalla eða alvarlegt virknivandamál sem tengist efninu, eða muni koma í veg fyrir misnotkun, kann uppfærslunni að vera lokið án tillits til uppfærslustillinganna þinna á Google Play eða í tækinu þínu. Ef

önnur forritaverslun reynir að uppfæra efni sem upphaflega var sótt af Google Play gætirðu fengið viðvörun eða uppfærslur þess jafnvel hindraðar alfarið.

Upplýsingar um þig. Persónuverndarstefna Google lýsir því hvernig við meðhöndlum persónuupplýsingar þínar og gætum persónuverndar þinnar við notkun Google Play. Google gæti þurft að gefa veitendum upp persónuupplýsingar þínar, s.s. nafn og netfang, í þeim tilgangi að vinna úr færslum þínum eða veita þér efni. Veitendur samþykkja að nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnur sínar.

Ef þú ert í fjölskylduhópi á Google Play geta meðlimir fjölskylduhópsins séð tilteknar upplýsingar um þig. Ef þú ert umsjónarmaður fjölskylduhóps á Google Play sjá meðlimir sem þú býður í fjölskylduhópinn nafnið þitt, myndina þína og netfangið þitt. Ef þú gengur í fjölskylduhóp geta aðrir fjölskyldumeðlimir séð nafnið þitt, myndina þína og netfangið þitt. Umsjónarmaður fjölskyldunnar getur einnig séð aldur þinn, yfirlit um kaup þín með greiðslumáta fjölskyldunnar ásamt lýsingu á keyptu efni. Ef efni er tiltækt til deilingar með fjölskyldunni og þú deilir því með fjölskylduhópnum þínum geta allir fjölskyldumeðlimir fengið aðgang að efninu og séð að þú keyptir það.

Óheimill aðgangur að reikningum. Þér ber að tryggja öryggi reikningsupplýsinganna þinna og þú mátt ekki deila þeim með öðrum. Þér er óheimilt að safna eða afla persónuupplýsinga um notanda Google Play eða annarrar Google þjónustu í gegnum Google Play, þar með talin eru heiti reikninga.

Óvirkir reikningar. Ef Google lokar fyrir aðgang að reikningnum þínum í samræmi við skilmálana (til dæmis ef þú brýtur efnislega eða endurtekið gegn skilmálunum) er hugsanlegt að þú glatir aðgangi þínum að Google Play, reikningsupplýsingunum þínum eða hverri þeirri skrá eða öðru efni sem geymt er á reikningnum þínum. Frekari upplýsingar má nálgast í hjálparmiðstöðinni. Ef þú ert umsjónarmaður fjölskyldu á Google Play og Google gerir aðgang að reikningnum þínum óvirkan gætu fjölskyldumeðlimir þínir misst aðgang að fjölskyldueiginleikum sem krefjast fjölskylduhóps, svo sem greiðslumáta fjölskyldunnar, fjölskylduáskriftum eða efni sem fjölskyldumeðlimir deila. Ef þú ert meðlimur fjölskyldu á Google Play og Google gerir reikninginn þinn óvirkan missa fjölskyldumeðlimir þínir aðgang að efni sem þú hefur deilt með þeim.

Spilliforritavörn. Til að vernda þig gegn skaðlegum hugbúnaði þriðju aðila, vefslóðum og öðrum öryggisvandamálum getur Google móttekið upplýsingar um nettengingar tækisins, vefslóðir sem hugsanlega eru skaðlegar, stýrikerfið og forrit sem sett hafa verið upp í tækinu í gegnum Google Play eða annars staðar frá. Google gæti varað þig við ef það telur forritið eða vefslóðina óörugga eða fjarlægt eða komið í veg fyrir uppsetningu forrits í tækinu ef vitað er að það sé skaðlegt tækjum, gögnum eða notendum. Þú getur valið að gera einhverjar af þessum verndarráðstöfunum óvirkar í stillingum tækisins, en Google gæti samt sem áður haldið áfram að fá upplýsingar um forrit sem eru sett upp gegnum Google Play, auk þess sem forrit sem sett eru upp í tækinu annars staðar frá verða hugsanlega áfram skoðuð í öryggisskyni án þess að senda upplýsingar til Google.

Android skyndiforrit. Þegar þú smellir á tengil í tækinu þínu kann Google Play að athuga hvort til sé viðeigandi skyndiforrit, og ef svo er, opna tengilinn innan skyndiforritsins. Þurfi kóða til að keyra þá hluta skyndiforritsins sem þú opnar verður kóðanum hlaðið niður í tækið þitt og hann geymdur þar tímabundið. Hægt er að nálgast upplýsingar um skyndiforrit í Google Play Store. Gögn og stillingar í „Android skyndiforrit“ eru samstillt við tæki sem eru skráð inn með Google reikningnum þínum. Þú getur valið að gera Android skyndiforrit óvirk í stillingum tækisins.

Breytingar á þessum skilmálum. Ef þjónustuskilmálar Play breytast er þér gefinn að lágmarki 30 daga fyrirvari áður en nýir þjónustuskilmálar Play taka gildi. Áframhaldandi notkun þín á Google Play að þeim tíma liðnum gefur til kynna samþykki þitt á nýjum þjónustuskilmálum Play. Nýir þjónustuskilmálar Play

gilda um notkun þína á öllu efni (þ.m.t. efni sem þú hefur sett upp eða keypt áður) og öllu sem þú setur upp eða kaupir síðar meir. Ef þú samþykkir ekki slíkar breytingar gefst þér kostur á að sækja efnið sem þú hafðir áður keypt eða sett upp og hætta að nota Google Play. Þú getur haldið áfram að skoða það eintak af efninu í tækjunum þínum í samræmi við síðustu útgáfu þjónustuskilmála Play sem þú samþykktir.

3. Kaup og greiðslur

Efni á Google Play er útvegað af Google Commerce Limited og þegar þú sækir, skoðar, notar eða kaupir efni á eða með Google Play gengstu undir nýjan samning samkvæmt þessum skilmálum (eftir því sem við á) við Google Commerce Limited.

Önnur reikningakerfi fyrir sum innkaup í forriti. Sumar þjónustuveitur kunna að selja vörur og/eða þjónustur í forritum sínum sem leyfa þér að nota önnur reikningakerfi en reikningakerfi Google Play. Þjónustuveita ber ábyrgð á því að veita þér nauðsynlegar upplýsingar. Ef þú kaupir vörur og/eða þjónustur í gegnum annað reikningakerfi en reikningakerfi Google Play gengstu undir aðskilinn samning sem byggist á skilmálum þriðja aðila og mun þriðji aðili afhenda vöruna og/eða þjónustuna. Þú munt ekki gangast undir samning við Google Commerce Limited sem mun sömuleiðis ekki teljast söluaðili vörunnar og/eða þjónustunnar. Þjónustuskilmálar Play (þ.m.t. ákvæði tengd verðlagningu, endurgreiðslu og rétti þínum til afturköllunar) eiga ekki við og tekur Google ekki þátt í afhendingu slíkrar vöru og/eða þjónustu.

Forpantanir. Þegar þú forpantar efni er samningurinn um kaup og notkun þess uppfylltur um leið og efnið verður tiltækt fyrir þig og þá verður greiðslu krafist. Hægt er að hætta við forpöntunina hvenær sem er fram að þeim tíma sem efnið verður tiltækt. Ef efnið er tekið úr sölu á Google Play áður en það er fáanlegt verðum við að afturkalla forpöntunina þína og við áskiljum okkur réttinn til að afturkalla pöntun ef verð breytist áður en pöntunin er afgreidd.

Greiðslumáti fjölskyldunnar. Ef þú ert umsjónarmaður fjölskylduhóps á Google Play þarftu að setja upp gildan greiðslumáta fyrir fjölskylduna sem meðlimir hennar nota til að kaupa efni á Google Play og í forritum. Þú berð ábyrgð á öllum kaupum fjölskyldumeðlima á efni með greiðslumáta fjölskyldunnar. Ef fjölskylduhópi er eytt eða ef meðlimur yfirgefur hópinn gætirðu þurft að greiða fyrir kaup hans sem eru í bið með greiðslumáta fjölskyldunnar.

Google Payments. Til þess að kaupa efni gegnum Google Play verðurðu að vera með Google Payments reikning og samþykkja þjónustuskilmála Google Payments. Upplýsingar Google Payments um persónuvernd gilda þegar þú kaupir efni með Google Payments reikningi. Þú berð ábyrgð á öllum fjárhæðum sem greiða þarf í tengslum við kaup gegnum Google Play á Google Payments reikningnum þínum.

Aðrar leiðir til að vinna úr greiðslum.Google kann að bjóða þér upp á ýmsar greiðsluaðferðir til viðbótar við Google Payments til að gera þér kleift að kaupa efni í gegnum Google Play. Þú verður að hlíta öllum viðeigandi skilmálum eða öðrum lagalegum samningum, hvort sem er við Google eða þriðja aðila, sem gilda um notkun þína á tiltekinni greiðsluaðferð. Google getur bætt við eða fjarlægt greiðsluaðferðir að eigin ákvörðun. Þú berð ábyrgð á öllum fjárhæðum sem greiða þarf í tengslum við kaup sem þú gerir á Google Play.

Gjaldgengi fyrir greiðslu gegnum símafyrirtæki.Til þess að ákvarða gjaldgengi þitt til þess að setja efniskaup sem þú framkvæmir með tækjunum þínum á reikninginn þinn hjá símafyrirtækinu þínu sendum við auðkenni tækisins þíns, t.d. auðkenni áskrifanda og raðnúmer SIM-kortsins, til símafyrirtækisins þegar þú stofnar Google Play reikning í tæki. Til að heimila þetta þarftu að samþykkja þjónustuskilmála símafyrirtækisins. Símafyrirtækið kann að senda okkur upplýsingar um heimilisfang greiðanda. Við munum geyma og nota þessar upplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnur Google og upplýsingar Google Payments um persónuvernd.

Verð. Verð og framboð á öllu efni sem birt er á Google Play getur breyst hvenær sem er áður en þú gengur frá kaupum.

Skattar. „Skattar“ eru hvers kyns gjöld, tollar eða skattar (utan tekjuskatts) í tengslum við sölu efnis, þ.m.t. sektir eða vextir. Þú berð ábyrgð á öllum sköttum og verður að greiða fyrir efnið án skattafrádráttar. Ef Google eða Google Commerce Limited er skylt að innheimta eða greiða skatta verða skattarnir innheimtir frá þér. Þú verður að fara að öllum gildandi skattalögum, þar með talið skýrslugerð og greiðslu

skatta í tengslum við notkun þína á Google Play eða kaup á efni á eða gegnum Google Play. Tilkynningar og greiðslur allra slíkra gildandi skatta eru á þína ábyrgð.

Öll sala endanleg. Í endurgreiðslureglum Google má nálgast frekari upplýsingar um rétt þinn til að afturkalla, hætta við eða skila kaupum og fá endurgreitt. Nema að því leyti sem skýrt er tekið fram í þjónustuskilmálum Google, endurgreiðslureglum Google Play eða endurgreiðslureglum veitanda er öll sala endanleg og engin skil, skipti eða endurgreiðslur eru leyfðar. Ef skipti, skil eða endurgreiðsla er heimiluð vegna einhverra viðskipta kunna viðskiptin að verða afturkölluð og þú hefur þá hugsanlega ekki lengur aðgang að efninu sem þú fékkst aðgang að með viðskiptunum.

Önnur lausn deilumála fyrir neytendur. Google Commerce Limited skuldbindur sig hvorki til né ber skylda til að leysa deilumál frammi fyrir úrskurðaraðila í deilumálum utan dómstóla.

Réttur til að afturkalla stafrænt efni. Ef þú ert að kaupa sem neytandi hefurðu lögum samkvæmt sjálfkrafa lögbundinn rétt til afturköllunar samninga vegna kaupa á stafrænu efni á Google Play innan 14 daga án þess að gefa upp ástæðu. Þegar þú kaupir eða gerist áskrifandi að stafrænu efni á fyrir utan forpantanir Google Play samþykkirðu þó að stafræna efnið verði tiltækt þér þegar í stað og samþykkir að í kjölfarið afsalir þú þér sjálfvirkum rétti þínum til afturköllunar.

Réttur til að afturkalla þjónustu. Ef þú ert að kaupa sem neytandi hefurðu rétt samkvæmt lögum til að afturkalla samninga vegna kaupa á þjónustu innan 14 daga án þess að þurfa að gefa upp neina ástæðu. Afturköllunartímabilið rennur út 14 dögum eftir að kaupin eru gerð. Til þess að nýta þér réttinn til afturköllunar verðurðu að upplýsa Google Commerce Limited um þá ákvörðun þína að afturkalla þennan samning með skýrri yfirlýsingu. Þú getur notað þetta sniðmát að afturköllunareyðublaði. Það er líka mögulegt að hafa samband við Google Commerce Limited, c/o Customer Support, 70 Sir John Rogerson's Quay, Dublin 2, D02R296, Írlandi 8004447 eða óska eftir endurgreiðslu hér.

Þú færð staðfestingu á slíkri afturköllun á varanlegum miðli (t.d. með tölvupósti) án ástæðulausrar tafar. Til að ná að afturkalla í tæka tíð dugir að senda upplýsingar um að þú ætlir að nýta þér réttinn til afturköllunar áður en afturköllunartímabilið er liðið.

Ef þú afturkallar samþykki þitt á þessum samningi færðu allar greiðslur þínar samkvæmt samningnum endurgreiddar án ástæðulausrar tafar og eigi síðar en 14 dögum frá því að skýr yfirlýsing þín um að afturkalla þennan samning berst Google Commerce Limited. Við munum endurgreiða þér með sama greiðslumáta og þú notaðir upphaflega við kaupin, nema þú hafir sérstaklega samið um annað, og slík endurgreiðsla mun ekki hafa í för með sér nein gjöld.

Ef þú óskar eftir að hefja notkun þjónustunnar á afturköllunartímabilinu gætirðu þurft að greiða upphæð í hlutfalli við veitta þjónustu þangað til þú hefur tilkynnt okkur að þú viljir afturkalla þennan samning, í samanburði við heildargildi samningsins.

Endurgreiðslur. Google býður viðbótarrétt til endurgreiðslna fyrir nokkrar gerðir efnis á Google Play, eins og skýrt er frá í endurgreiðslureglum Google Play.

Áskriftir. Þegar þú gerist áskrifandi að efni gegnum Google Play færðu áframhaldandi aðgang að því efni nema þú segir áskriftinni upp. Sjálfkrafa er skuldfært fyrir áskriftum við upphaf hvers greiðslutímabils (hvort sem það er vikulega, mánaðarlega, árlega eða annað tímabil) og ekki má skuldfæra af þér fyrr en sólarhring áður en hvert greiðslutímabil hefst.

(a) Prufutímabil. Þegar þú gerist áskrifandi að efni fyrir tiltekið verð færðu hugsanlega aðgang að áskriftarfríðindum efnisins án greiðslu á tilgreindu prufutímabili en eftir það verður greiðsla innheimt

þangað til þú segir áskriftinni upp. Til að forðast innheimtu greiðslu verðurðu að segja áskriftinni upp áður en prufutímabilinu lýkur. Um leið og prufuáskriftinni er sagt upp missirðu samstundis aðgang að efninu og öllum áskriftarfríðindum, nema annað sé tekið fram. Aðgangur að slíkum prufutímabilum kann að vera takmarkaður við ákveðinn fjölda af prufutímabilum fyrir hvern notanda á ákveðnu tímabili, eða háður öðrum takmörkunum.

(b) Uppsögn áskrifta. Þú getur sagt upp áskrift hvenær sem er fyrir lok gildandi greiðslutímabils eins og lýst er í Hjálparmiðstöðinni og þá gildir uppsögnin um næsta tímabil. Ef þú kaupir til dæmis mánaðaráskrift geturðu sagt þeirri áskrift upp hvenær sem er í hvaða áskriftarmánuði sem er og þá verður áskriftinni sagt upp frá og með lokum greiðslutímabilsins sem stendur yfir. Þú færð ekki endurgreitt fyrir núverandi greiðslutímabil nema annað komi fram í endurgreiðslureglum Google Play (til dæmis þegar efnið er gallað).

(c) Afslættir fyrir áskrifendur prentútgáfu. Sumir tímaritaútgefendur kunna að gefa þér kost á að kaupa áskrift að tímaritum á Google Play með afslætti ef þú ert þegar með prentáskrift. Ef þú segir upp prentáskrift að því tímariti eða ef prentáskriftin rennur út og þú endurnýjar hana ekki verður tilboðsáskriftarverð þitt að viðkomandi efni í Google Play afturkallað sjálfkrafa.

(d) Verðhækkanir. Þegar þú kaupir áskrift verður fyrst innheimt samkvæmt því verði sem var í gildi þegar þú samþykktir áskrift. Ef verðið fyrir áskriftina hækkar síðar lætur Google þig vita. Hækkunin gildir fyrir næstu greiðslu sem greiða á eftir tilkynningu þar um, að því gefnu að þú hafir fengið að minnsta kosti 30 daga fyrirvara áður en innheimt er. Ef þú færð minna en 30 daga fyrirvara gildir verðhækkunin ekki fyrr en greiða á þarnæstu greiðslu. Ef þú vilt ekki borga hærra verð fyrir áskriftina geturðu sagt henni upp eins og lýst er í hlutanum „Uppsagnir“ og þá verður ekki skuldfært fyrir áskrift framvegis, að því gefnu að þú hafir látið okkur vita innan yfirstandandi greiðslutímabils. Ef útgefandi hækkar verð áskriftar og samþykkis er krafist kann Google að segja upp áskriftinni nema þú samþykkir nýja verðið. Ef áskriftinni er sagt upp og þú ákveður síðar að gerast áskrifandi á ný greiðir þú núverandi áskriftarverð.

4. Réttindi og takmarkanir

Leyfi til að nota efni. Eftir að færslu er lokið eða viðeigandi gjöld hafa verið greidd fyrir efni færðu almenn réttindi, eingöngu eins og veitt er skýrlega leyfi fyrir í þessum skilmálum og tengdum reglum, til að geyma, fá aðgang að, skoða, nota og birta afrit af viðeigandi efni í tækjunum þínum eða á annan hátt samkvæmt leyfi, eingöngu til einkanota en ekki í viðskiptalegum tilgangi. Allur réttur, titlar og hlutdeild sem tilheyra Google Play og efni sem þér er ekki veitt með skýrum hætti í skilmálunum eru áskilin. Notkun þín á forritum og leikjum kann að falla undir gildissvið viðbótarskilmála notandaleyfissamningsins milli þín og veitandans.

Brot á leyfisskilmálum.Ef þú brýtur takmörkunarákvæði um efni í skilmálunum, brýtur efnislega eða endurtekið gegn einhverjum öðrum skilmálum eða sætir rannsókn af hendi okkar vegna gruns um misferli kann Google að segja upp aðgangi þínum að Google Play, efninu og/eða Google reikningnum þínum, án endurgreiðslu til þín, og réttindi þín samkvæmt leyfi þessu verða afturkölluð tafarlaust. Við munum tilkynna þér um ástæðu slíkrar aðgerðar, nema vþví undanskildu að við höfum rökstuddan grun um að slíkt myndi skapa lagalega ábyrgð fyrir Google eða annan aðila, myndi hindra rannsókn, myndi stofna vörum, þjónustu eða kerfi Google í hættu, myndi valda notendum okkar skaða eða bryti gegn lögum eða tilskipunum löggæsluyfirvalda. Sjá frekari upplýsingar í „Óvirkir reikningar“ í 2. lið.

Takmarkanir: Þú mátt ekki:

Ákvæði þriðju aðila. Þrátt fyrir hvað sem stangast á við þessa skilmála eru þeir þriðju aðilar sem bjóða efni sitt á Google rétthafar samkvæmt þessum skilmálum, eingöngu hvað varðar þau ákvæði þessara skilmála sem tengjast efni þeirra beint („ákvæði þriðju aðila“), og eingöngu í þeim tilgangi að gera viðkomandi þriðju aðilum kleift að framfylgja rétti sínum á slíku efni. Til að taka af allan vafa veitir ekkert í þessum skilmálum þriðja aðila sem er rétthafi rétt gagnvart nokkrum aðila hvað varðar nokkur ákvæði sem ekki falla undir ákvæði þriðju aðila, sem felur í sér en takmarkast ekki við, ákvæði eða samþykktir sem felld eru inn til hliðsjónar eða sem kann að vera vísað til án þess að þau séu felld inn í þessa skilmála.

Reglur Play. Birting umsagna á Google Play fellur undir eftirfarandi reglur. Ef þú vilt tilkynna misnotkun eða önnur brot hvað varðar efni skaltu smella hér.

Gallað efni.Þegar efni stendur þér til boða í gegnum reikninginn þinn ættirðu að athuga efnið eins fljótt og auðið er til að tryggja að það virki sem skyldi og láta okkur eða veitandann vita eins fljótt og auðið er ef þú finnur einhverjar villur eða galla. Í endurgreiðslureglum Google Play má nálgast frekari upplýsingar.

Efni fjarlægt eða ótiltækt. Með fyrirvara um skilmálana stendur efni sem þú kaupir eða setur upp þér til boða í gegnum Google Play í þann tíma sem þú velur, ef um er að ræða greiðslu fyrir leigutímabil, og í

öðrum tilvikum svo lengi sem Google hefur rétt til að gera slíkt efni aðgengilegt fyrir þig. Í vissum tilvikum (til dæmis ef Google missir tiltekin réttindi, hættir að veita þjónustu eða efni, alvarleg öryggisvandamál eru til staðar eða brotið er gegn gildandi skilmálum eða lögum) kann Google að fjarlægja tiltekið efni sem þú hefur keypt úr tækinu þínu eða hætta að veita þér aðgang að því. Þú getur fengið fyrirvara um slíka fjarlægingu eða lokun ef það er mögulegt. Ef þú getur ekki sótt eintak af efninu áður en það er fjarlægt eða því lokað kann Google að bjóða þér annaðhvort (a) að skipta um efni ef unnt er eða (b) að endurgreiða þér verð efnisins að fullu eða að hluta til. Ef Google endurgreiðir þér skal endurgreiðsla kaupverðsins vera eina réttarúrræðið sem þér stendur til boða.

Margir reikningar. Ef þú ert með marga Google reikninga með mismunandi notendanöfnum geturðu stundum flutt efni af einum reikningi yfir á annan, að því gefnu að þú sért eigandi beggja reikninganna og að Google hafi virkjað eiginleika í viðkomandi þjónustu sem heimilar slíka tilfærslu.

Aðgangstakmarkanir í tækjum. Google getur öðru hverju sett takmarkanir á fjölda tækja eða forrita sem þú getur notað til að fá aðgang að efni. Skoðaðu notkunarreglur Google Play Movies & Google TV til að fá frekari upplýsingar um þessar takmarkanir fyrir Google Play Movies & TV / Google TV.

Hættuleg starfsemi. Ekkert af þjónustunni eða efninu er ætlað til notkunar í starfsemi kjarnorkuvera, búnaðar til stuðnings lífi, neyðarboðskipta, flugvéla eða samskiptakerfa, flugumferðarstjórnkerfa eða annarri slíkri starfsemi þar sem bilun í þjónustunni eða efninu gæti leitt til dauðsfalls, líkamstjóns, alvarlegra efnislegra skemmda eða umhverfisspjalla.

Google Play Movies & TV / Google TV. Nánari upplýsingar og takmarkanir varðandi aðgang þinn að og notkun þína á Google Play Movies & TV / Google TV er að finna í notkunarreglum Google Play Movies & Google TV.