Google myndir

30.572.885

Myndirnar þínar og myndskeiðin þín eiga öll heima hjá Google myndum. Þar eru þau flokkuð sjálfkrafa og þaðan er auðvelt að deila þeim.

- „Besta myndavara í heimi“ – The Verge

- „Google myndir er besta nýja myndaforritið“ – Wired



Forritið Google myndir er sniðið að því hvernig fólk tekur myndir í dag og inniheldur eiginleika eins og sameiginleg albúm, efni sem búið er til sjálfkrafa og ítarlega myndvinnslueiginleika. Auk þess fylgir 15 GB ókeypis geymslurými með hverjum Google reikningi og þú getur valið að afrita allar myndir og myndskeið sjálfkrafa í hágæðum eða upprunalegum gæðum. Þá hefurðu aðgang að þeim í hvaða nettengda tæki sem er og á photos.google.com.



Með opinbera forritinu færðu:



ÓKEYPIS GEYMSLURÝMI: Afritaðu allt að 15 GB af myndum og myndskeiðum ókeypis og nálgastu þau í hvaða tæki sem er og á photos.google.com – myndirnar þínar eru í öruggu skjóli og enginn getur nálgast þær nema þú. Allar myndir og myndskeið sem þú afritar í hágæðum fyrir 1. júní 2021 teljast ekki með í geymslurými Google reikningsins þíns.



LOSAÐU PLÁSS: Hafðu aldrei framar áhyggjur af því að geymslurými símans fyllist. Hægt er að fjarlægja afritaðar myndir úr geymslurými tækisins með einni snertingu.



SNJÖLL OG SJÁLFVIRK ALBÚM: Fáðu sjálfkrafa nýtt albúm sem inniheldur aðeins bestu myndirnar sem þú tókst á viðburði eða í ferðalagi og bjóddu öðrum að bæta sínum myndum við.



SJÁLFVIRK SKÖPUN: Gæddu myndirnar lífi með því að láta sjálfkrafa búa til kvikmyndir, klippimyndir, hreyfimyndir, víðmyndir og fleira úr myndunum þínum. Þú getur líka auðveldlega búið þær til upp á eigin spýtur.



ÍTARLEGIR MYNDVINNSLUEIGINLEIKAR: Umbreyttu myndunum þínum með einni snertingu. Notaðu snjöll og öflug myndvinnslutól til að setja inn viðeigandi síur, stilla lýsingu og fleira.



DEILINGARTILLÖGUR: Snjallar deilingartillögur auðvelda þér að láta vini þína fá myndir sem þú tókst af þeim. Síðan geta vinir þínir bætt sínum myndum við svo þú færð loksins að sjá myndirnar sem þú ert á.



HRÖÐ OG ÖFLUG LEIT: Nú er hægt að leita í myndunum þínum eftir því hver, hvað eða hvaða staður birtist á þeim — engin þörf á að merkja.



LIFANDI ALBÚM: Veldu fólkið og gæludýrin sem þú vilt sjá og Google myndir bæta myndum af þeim sjálfkrafa við um leið og þú tekur þær. Engin þörf á að uppfæra handvirkt.*



MYNDABÆKUR: Búðu til myndabók á nokkrum mínútum í símanum eða tölvunni. Þú getur líka séð tillögur að myndabókum með bestu myndunum úr ferðalagi eða frá ákveðnu tímabili.*



GOOGLE LINSA: Leitaðu að því sem erfitt er að lýsa og komdu hlutum í verk með því að taka mynd. Afritaðu og þýddu texta, greindu plöntur og dýr, bættu viðburðum við dagatalið þitt, finndu vörur á netinu og fleira.



SENDU MYNDIR Á ÖRFÁUM SEKÚNDUM: Deildu myndum samstundis með hvaða tengilið, netfangi eða símanúmeri sem er.



SAMEIGINLEG SÖFN: Veittu einhverjum sem þú treystir aðgang að öllum myndunum þínum.



Þú getur einnig uppfært geymslurými fyrir Google reikninginn þinn, sem notað er fyrir myndir og myndskeið í upprunalegum gæðum, með því að gerast áskrifandi að Google One. Áskrift kostar frá 1,99 USD á mánuði fyrir 100 GB í Bandaríkjunum. Verð og framboð er mismunandi eftir löndum.

- Þjónustuskilmálar Google One: https://one.google.com/terms-of-service

- Verð Google One: https://one.google.com/about



Frekari upplýsingar er að finna á https://support.google.com/photos



*Andlitsflokkun, lifandi albúm og myndabækur eru ekki í boði í öllum löndum.
Frekari upplýsingar
Minnka
4,5
30.572.885 samtals
5
4
3
2
1
Hleður…

Nýjungar

Við erum að breyta geymslureglum okkar á ótakmörkuðum hágæðum. Frá og með 1. júní 2021 munu nýjar myndir og myndskeið sem er hlaðið upp í hágæðum teljast með í geymslurými Google reikningsins þíns. Allar myndir og myndskeið sem eru afrituð í hágæðum fyrir 1. júní 2021 eru undanþegin þessari breytingu og munu ekki teljast með í geymslurými Google reikningsins þíns.
Frekari upplýsingar
Minnka

Frekari upplýsingar

Uppfært
2. desember 2020
Stærð
Fer eftir tækjum
Uppsetningar
1.000.000.000+
Núverandi útgáfa
Fer eftir tækjum
Krefst Android
Fer eftir tækjum
Efnisflokkun
Í boði frá
Google Commerce Ltd
Þróunaraðili
1600 Amphitheatre Parkway, Mountain View 94043
©2020 GoogleÞjónustuskilmálar vefsvæðisPersónuverndÞróunaraðilarUm Google|Tungumál: íslenskaVirðisaukaskattur er innifalinn í verði.
Með því að kaupa þessa vöru sendirðu greiðslu með Google Payments og samþykkir þjónustuskilmála Google Payments og upplýsingar um persónuvernd.