Við kynnum nýja MyToyota appið sem er uppfullt af tengdum og fjarstýrðum þjónustum, hannaðar til að gera lífið auðveldara fyrir eigendur Toyota bíla með tengimöguleika.
Vertu með tengingu við bílinn og stjórnaðu búnaði hans hvar sem þú ert með því að nota MyToyota appið í snjallsímanum þínum. Finndu bílinn þinn, fjarstýrðu hitastiginu inni í bílnum fram í tímann, fínstilltu aksturslag þitt, fáðu akstursgreiningu, þjónustu- og viðhalds áminningar – og svo miklu meira.
Hvernig nýtist það þér?
- SPARAR TÍMA Í LEIT AÐ BÍLNUM ÞÍNUM: Ertu búin að gleyma hvar þú lagðir bílnum þínum? Þú finnur hann á auðveldan hátt með Finna bílinn minn. ¹
- KEMUR AUGA Á BÍLINN Í BÍLAMERGÐ: Geturðu ekki fundið bílinn þinn á stútfullu bílastæði? Kveiktu á Hættu ljósunum og láttu blikkandi birtuna af þeim vísa þér beint að bílnum. ¹
- EKUR MEÐ BETRI NÝTNI: Njóttu persónulegrar Hybrid þjálfunar sem kennir þér að aka Hybrid bílnum þínum þannig að þú nýtir hann sem best, byggt á akstursgögnum þínum. Þannig lærirðu að draga úr eyðslu og getur séð framfarir yfir ákveðið tímabil. ¹
- ÞÆGILEG STJÓRNUN: Athugaðu stöðu bílsins og notaðu fjarstýrða læsingar/aflæsingar möguleikann til að læsa og aflæsa bílnum úr fjarlægð með einni aðgerð í appinu, fyrir hugarró og til hagræðingar hvar sem þú ert. ¹
- STILLIR Á ÞÆGILEGT HITASTIG: Fjarstýrð hitastýring gefur þér möguleika á að stilla hitastigið í bílnum úr fjarlægð áður en ferðin þín hefst. Forhitaðu og afþýddu fram- og afturrúðuna á veturna eða kældu bílinn að innan á sumrin til að auka þægindin í hverri ferð. ¹
- GREINIR FERÐIRNAR ÞÍNAR: Fáðu aðgang að dýrmætum gögnum og greiningu á aksturslagi þínu með gögnum úr Akstursgreiningunni. ¹
- ÞÆGILEG ÞJÓNUSTUBÓKUN: Með Þjónustubókun á vefnum getur þú bókað þjónustu eða skoðað viðhaldssögu í fáum einföldum skrefum til að ganga úr skugga um að Toyotan þín sé ávalt örugg til aksturs og í topp ástandi.¹
- ÞÚ ERT UPPLÝSTARI: Fáðu sendar mikilvægar Þjónustu- og viðhalds áminningar svo þú missir ekki af skoðunartíma. ¹
- HJÁLP MEÐ VIÐVÖRUNUM: Fáðu tilkynningu um allar viðvaranir sem Toyotan þín birtir og fáðu á sjálfvirkan hátt aðstoð tímanlega frá þínum Toyota þjónustuaðila ef Viðvörunarljósin gefa til kynna að viðgerðar sé þörf. ¹
MyToyota tengdar þjónustur eru í boði í völdum gerðum og útfærslum af Toyota bílum sem eru tengjanlegir.
Leitaðu upplýsingar hjá þínum söluaðila fyrir nánari upplýsingar. ¹