Alfreð tengir saman fólk og fyrirtæki með appi þar sem fjölda starfa er í boði á degi hverjum. Búðu til prófíl og sæktu um starf í einum smelli með símanum þínum.
Svona notar þú Alfreð
● Prófíll: Fylltu prófílinn þinn út og þá getur þú sótt um með einum smelli þegar þú sérð spennandi starf í boði.
● Vakta störf: Láttu Alfreð vakta störfin og fáðu skilaboð um leið og spennandi atvinnutækifæri birtist.
● Umsókn: Sæktu um spennandi störf beint úr appinu og sjáðu umsóknarferlið á mælistiku sem sýnir þér stöðuna hverju sinni.
● Viðhengi: Þú getur vistað ferilskrá, meðmælabréf og önnur fylgiskjöl fyrir umsóknir inni á prófílnum þínum.
● Samskipti: Þú færð skilaboð og svör við umsókn þinni í innhólfið þitt, m.a. boð í starfsviðtal eða vídeóviðtal.
Ný tækifæri á hverjum degi
● Laus störf: Daglega bætast við ný og spennandi atvinnutækifæri á Alfreð. Láttu Alfreð vakta þau fyrir þig, skoðaðu hvaða vinnustaðir eru í boði eða leitaðu eftir starfsgrein eða landsvæði.
● Námskeið: Þú getur líka skoðað fjölda spennandi námskeiða sem auglýst eru á Alfreð. Hvort sem þú vilt bæta við þekkingu þína og fjölga tækifærum þínum á vinnumarkaði eða leggja meiri rækt við áhugamálin þá er góð hugmynd að skoða námskeiðin á Alfreð.