Í Top Gun er tekin fyrir hættan og spennan sem bíður sérhvers flugmanns í flugmannaskóla sjóhersins. Tom Cruise er frábær sem Pete "Maverick" Mitchell, fífldjarfur ungur flugmaður sem stefnir á að verða sá allra besti. Og Kelly McGillis er sjóðheit sem borgaralegur leiðbeinandi sem kennir Maverick nokkra hluti sem lærast ekki í kennslustofu.