Þannig gerðist upphaf alls. Guð skapaði alheiminn og allt í honum á sex dögum. Eftir að Guð skapaði jörðina var hún myrk og tóm og ekkert hafði myndast í henni. En andi Guðs var þarna yfir vatninu. Þá sagði Guð: „Verði ljós!“ Og það var ljós. Guð sá að ljósið var gott og kallaði það „dag“. Hann skildi það frá myrkrinu, sem hann kallaði „nótt“. Guð skapaði ljósið á fyrsta degi sköpunarinnar. Á öðrum degi sköpunarinnar talaði Guð og skapaði himininn fyrir ofan jörðina. Hann bjó til himininn með því að skilja vatnið fyrir ofan frá vatninu fyrir neðan. Á þriðja degi talaði Guð og skildi vatnið frá þurru landinu. Hann kallaði þurrt land „jörð“ og kallaði vatnið „haf“. Guð sá að það sem hann hafði skapað var gott.