TimeEd Stimpilklukka er einföld “kiosk” íslensk stimpilklukka fyrir spjaldtölvu á vinnustaðnum.
Starfsfólk stimplar sig inn og út á örfáum sekúndum og upplýsingarnar sjást strax í TimeEd á vef og í síma.
Helstu kostir
• Inn/út með símanúmeri.
• Hentar öllum sem mæta á sama vinnustað og stimpla sig inn/út á sameiginlegu tæki.
• Viðmót á íslensku og 8 öðrum tungumálum til að styðja fjölbreyttan vinnustað.
• Skýr staða á skjá: klukkan, staðsetning og fyrirtæki.
• Fljótleg staðfesting eftir stimplun (t.d. “Clocked out successfully”) og sjálfvirk endurstaða aftur á innskráningu.
• Samfelld tenging við TimeEd Desktop & Mobile – engin tvískráning.
Fyrir stjórnendur
• Yfirsýn yfir hver er stimplaður inn/út.
• Réttari tímaskráning og færri “gloppur”.
• Auðveld innleiðing: setja upp tæki, tengja og byrja.
Kröfur
• Virkur TimeEd aðgangur hjá fyrirtækinu.
• Nettenging á tækinu.
TimeEd Stimpilklukka er hönnuð til að gera tímaskráningu sjálfvirkari, öruggari og hraðari – fyrir bæði starfsfólk og skrifstofu.
Aktualisiert am
27.02.2026