El Greco, sem hét réttu nafni Doménikos Theotokópoulos, var grískur málari, myndhöggvari og arkitekt spænska endurreisnartímans. Hann fæddist á Krít, sem var á þeim tíma hluti af lýðveldinu Feneyjum á Ítalíu og miðstöð póst-bysantískrar listar. Hann lærði og varð meistari innan þeirrar hefðar áður en hann ferðaðist til Ítalíu eins og aðrir grískir listamenn höfðu gert. Árið 1577 flutti hann til Toledo á Spáni, þar sem hann bjó og starfaði til dauðadags.
El Greco er talinn undanfari bæði expressjónisma og kúbisma, en persónuleiki hans og verk voru innblástur fyrir skáld og rithöfunda eins og Rainer Maria Rilke og Nikos Kazantzakis.