Verið velkomin í Reykholt, stað Snorra Sturlusonar
Snorrastofa gefur út leiðsögn, sem veitir fróðleik um staðinn og eykur ánægju og upplifun gesta er þeir ganga um helstu viðkomustaði hans. Þar má einnig kynna sér þá þjónustu sem gestum staðarins stendur til boða. Hægt er að sækja leiðbeiningar í gestamóttöku, inngangur undir turni kirkjunnar.
Með leiðsögninni býðst gestum að ganga um staðinn og upplifa sögu hans og menningu. Gestir geta jafnframt kynnt sér yfirlitskort og hvern viðkomustað fyrir sig með hjálp mynda og texta.
Hér eru einnig aðgengilegar upplýsingar um náttúruperlur í nágrenninu, veitingar og þjónustu, gistimöguleika, almenningssamgöngur, veðurskilyrði og afþreyingu.
Leiðsögnin er fáanleg á Íslensku, ensku, dönsku, þýsku, frönsku norsku og pólsku.