Skrensaðu, svífðu og gefðu allt í botn í þessum tímalausa fjölspilunarleik sem er fullur af kunnuglegum andlitum og spennandi borðum sem eru innblásin af raunverulegum borgum. Leiktu þér að hlutum, hraða og áskorunum til að hrista upp í hefðbundinni leikjaspilun. Nærðu í mark á undan hinum eða mun illkvittin blá skel hrinda þér út af topplistanum?