Þegar töfraloftsteinn hrapar til jarðar í Ævintýraborg veitir hann hvolpunum í Hvolpasveitinni ofurkrafta, breytir þeim í OFURHVOLPANA! En þau takast á við stærstu áskorun sína hingað til þegar erkióvinur hvolpanna, Humdinger, brýst út úr fangelsi og tekur höndum saman við Victoria Vance, brjálaða vísindakonu, um að stela ofurkröftunum fyrir þau sjálf. Með örlög Ævintýraborgar í hættu verða Ofurhvolparnir að stöðva óþokkana áður en það er um seinan.