'Madagaskar er bandarísk tölvuteiknuð kvikmynd frá DreamWorks Animation frá árinu 2005. Myndin fjallar um fjögur dýr úr Dýragarði New York-borgar sem eru send til Afríku og enda fyrir slysni á eyjunni Madagaskar. Í aðalhlutverkum eru Ben Stiller, Jada Pinkett Smith, Chris Rock og David Schwimmer.