Í Guardians of the Galaxy Vol. 3 frá Marvel Studios hefur hópur utangarðshetjanna sem allir elska og dá tekið töluverðum breytingum. Peter Quill (Chris Pratt) er enn að jafna sig eftir hræðilegan missi en verður að fá allan hópinn með sér í hættulegt og æsispennandi ferðalag til að vernda vetrarbrautina og Rocket. En á sama tíma hótar ný og óútreiknanleg ógn að sigrast á Verndurunum í eitt skipti fyrir öll. James Gunn skrifar handritið og leikstýrir Guardians of the Galaxy Vol. 3. VARÚÐ: Blikkandi ljós í myndinni gætu haft áhrif á ljósnæma áhorfendur.
Vísindaskáldskapur og fantasíur