Tuttugu og fimm árum eftir röð hrottalegra morða sem hrelldi hinn rólega bæ Woodsboro hefur nýr morðingi tekið upp draugsgrímuna. Þegar dauðsföllum fjölgar þurfa ný skotmörk í Woodsboro að leita hjálpar þeirra sem lifðu af árásir upphaflega morðingjans. Núna geta aðeins Sidney Prescott (Neve Campbell), fyrrum lögreglustjórinn Dewey Riley (David Arquette) og blaðakonan Gale Weathers (Courteney Cox) fundið leið til að stöðva orðingjann þegar öll eru grunuð.