Leigðu eða kauptu kvikmyndir á YouTube eða í Google TV
Ekki er hægt að kaupa kvikmyndir á Google Play lengur

A Haunting In Venice

2023 • 103 mínútur
76%
Tomatometer
FSK-12
Flokkun
Gjaldgeng
Ekki er hægt að velja hljóð eða skjátexta á þínu tungumáli. Hægt er að velja skjátexta á tungumálinu enska, franska, ítalska og þýska.

Um þessa kvikmynd

Kenneth Branagh leikur frækna spæjarann Hercule Poirot í þessari hrollvekjandi morðgátu sem gerist eftir seinni heimsstyrjöldina á skuggalegu hrekkjavökukvöldi. Poirot er hættur störfum og fluttur í sjálfskapaða útlegð í Feneyjum á Ítalíu en ákveður með semingi að sitja skyggnilýsingarfund í hrörlegu reimleikahúsi. Þegar einn gestanna er myrtur er spæjarinn rekinn inn í illsvitandi og skuggalega veröld. Hér koma aftur saman mörg þeirra sem unnu að gerð myndanna "Murder on the Orient Express" frá 2017 og "Death on the Nile" frá 2022. Kenneth Branagh leikstýrir og handritið skrifar Michael Green (meðhöfundur "Logan"), en það er byggt á skáldsögu Agöthu Christie "Hallowe'en Party". Framleiðendur eru Kenneth Branagh, Judy Hofflund, Ridley Scott og Simon Kinberg, en James Prichard, Louise Killin og Mark Gordon eru yfirframleiðendur. Stórkostlegur leikhópur fer með hlutverk ógleymanlegra persóna, en þeirra á meðal eru Kenneth Branagh, Kyle Allen ("Rosaline"), Camille Cottin ("Call My Agent!"), Jamie Dornan ("Belfast"), Tina Fey ("30 Rock"), Jude Hill ("Belfast"), Ali Khan ("6 Underground"), Emma Laird ("Mayor of Kingstown"), Kelly Reilly ("Yellowstone"), Riccardo Scamarcio ("Caravaggio's Shadow") og Michelle Yeoh ("Everything Everywhere All at Once").
Flokkun
FSK-12

Gefðu þessari kvikmynd einkunn

Segðu okkur hvað þér finnst.