Apocalypse Now

1987 • 153 mínútur
R
Flokkun
Þetta atriði er ekki tiltækt

Um þessa kvikmynd

Apocalypse Now er kvikmynd frá árinu 1979 í leikstjórn Francis Ford Coppola. Myndin, sem var lauslega byggð á skáldsögu Josephs Conrad, Heart of Darkness, gerist í Víetnamstríðinu og segir frá leiðangri Benjamin L. Willard höfuðsmanns í bandaríska hernum í leit að Walter E. Kurtz ofursta. Til að komast að Kurtz þarf Willard að ferðast upp með ánni Nung inn í frumskóga Kambódíu. Þar hefur Kurtz tekið sér stöðu leiðtoga meðal íbúa og hegðar sér, samkvæmt lýsingum sem Willard fær á fundi áður en haldið er af stað, á ómannúðlegan hátt. Hlutverk Willards var leikið af Martin Sheen og Marlon Brando lék Kurtz ofursta. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Robert Duvall, Dennis Hopper og Laurence Fishburne.
Francis Ford Coppola hóf vinnu á myndinni þegar hann hafði lokið við að leikstýra hluta 2 af myndunum um Guðföðurinn. Upptaka fór fram á Filipseyjum og átti fyrst um sinn að taka 6 vikur. Framleiðslan dróst hins vegar mjög á langinn og urðu þessar 6 vikur að lokum að 16 mánuðum. Átti Coppola þá, sem fjármagnaði myndina að öllu leyti með eigin fé, á hættu að verða gjaldþrota gengi myndin ekki vel í kvikmyndahúsum. Gerð myndarinnar tók mikið á Coppola, jafnt andlega sem líkamlega.
Flokkun
R