Harrison Ford snýr aftur í hlutverki goðsagnakenndu hetjunnar og fornleifafræðingsins Indiana Jones í þessum síðasta kafla kvikmyndaseríunnar dáðu, sem margir hafa beðið eftir. Þetta er mikil og æðisgengin ævintýramynd sem færist heimshorna á milli! Indiana Jones (Ford) er þvingaður til að taka að sér áskorun sem reynir bæði á styrk hans og þolinmæði og neyðist til að leggja allt að veði til að halda fornri skífu (sem gæti breytt gangi sögunnar) frá þeim sem vilja nota hana sér til framdráttar. Á meðal frábærra aukaleikara má nefna Phoebe Waller-Bridge, Antonio Banderas, John Rhys-Davies, Toby Jones og Mads Mikkelsen, en Indiana Jones and the Dial of Destiny er sannkölluð þeysireið! Þessi spennandi lokakafli er í leikstjórn James Mangold, handritið skrifa Jez Butterworth & John-Henry Butterworth ásamt David Koepp og James Mangold, en George Lucas og Philip Kaufman sköpuðu upprunalegu persónurnar.