Í Inside Out 2 frá Disney og Pixar erum við aftur komin inn í huga táningsstúlkunnar Dagnýjar, einmitt þegar skyndilegt niðurrif hefst í höfuðstöðvunum til að rýma fyrir einhverju alveg óvæntu: nýjum tilfinningum! Gleði, Sorg, Ofsi, Ótti og Óbeit hafa lengi stjórnað öllu með góðum árangri, en þau vita ekki hvernig þau eiga að taka því þegar Áhyggja bætist í hópinn. Og hún er ekki ein á ferð. Henni fylgja nefnilega Feimni, Öfund og Ennui.