"Haunted Mansion" er lauslega byggð á sígildu skemmtigarðs-reimleikahúsi og segir frá Gabbie (Rosario Dawson), einstæðri móður, sem kemst að því að pirrandi drauga er að finna í nýju húsi hennar og sonar hennar. Gabbie vonast til að fá frið á heimilið og ræður sundurleitan hóp svokallaðra dulrænna sérfræðinga til að losna við yfirnáttúrulegu hústökuvofurnar af heimilinu. Myndin er skemmtileg blanda af spennu, ævintýrum og gríni og skartar úrvalsliði leikara, þeirra á meðal LaKeith Stanfield, Tiffany Haddish, Owen Wilson, Danny DeVito, Dan Levy, Jamie Lee Curtis og Jared Leto. Katie Dippold skrifar handritið og Justin Simien leikstýrir. Framleiðendur eru Dan Lin og Jonathan Eirich, en Nick Reynolds og Tom Peitzman eru yfirframleiðendur.