Kelsey Grammer*, handhafi Golden Globe™ verðlauna leikur í þessari hrífandi þroskasögu sem á sér stað í hinni frægu tónlistarsenu í Los Angeles á 10. áratugnum. Micky Adams (Grammer) er sérvitur rokkari sem lifir á fornri frægð og missir tökin á raunveruleikanum er útgefandafyrirtækið hans reynir að losa sig við hann og nýju "einstöku" plöturnar hans. Hinn ungi Charlie Porter þráir að komast til metorða í tónlistarbransanum og fær það verkefni að ferðast til hins undarlega heimilis Micky Adams og þvinga hann undan útgáfusamningnum. Micky verður ljóst að Charlie gæti verið lykillinn að listrænum frama og vinátta þeirra vex. Þeir læra báðir mikið af hvor öðrum um tónlistariðnaðinn, lífið, ástina... og allt þar á milli. *2012 Besti leikari í sjónvarpsþáttaröð, Boss