Stærsti draumur Tedda er að vera samþykktur af kollegum hans í fornleifafræðinni, en hrakfallasaga hans þvælist fyrir. Þegar hann eyðileggur óvart sjaldgæfa steinkistu koma fram álög sem setja líf vina hans í hættu. Að bjarga Mumma, Jafet og Belzoni setur af stað hasarævintýri sem senda Tedda og Söru í ferðalag til fjarlægra heimshorna til að finna leið til að stöðva álög smaragðstöflunnar.