The Boogeyman er hryllings-tryllir eftir sögu metsöluhöfundarins Stephens King. Menntaskólaneminn Sadie Harper og yngri systir hennar, Sawyer, reyna að jafna sig eftir dauða móður sinnar án mikils stuðnings frá föður sínum, Will, þerapista sem reynir að glíma við eigin sársauka. Þegar örvæntingarfullur sjúklingur kemur óvænt inn á heimilið í leit að hjálp skilur hann eftir sig hræðilega yfirnáttúrulega veru sem níðist á fjölskyldum og nærist á þjáningu fórnarlamba sinna. Með helstu hlutverkin í The Boogeyman fara Sophie Thatcher (Yellowjackets), Chris Messina (Birds of Prey), Vivien Lyra Blair (Obi-Wan Kenobi), Marin Ireland (The Umbrella Academy), Madison Hu (Bizaardvark), LisaGay Hamilton (Vice) og David Dastmalchian (Dune). Rob Savage leikstýrir myndinni og handritið er eftir Scott Beck, Bryan Woods og Mark Heyman. Varúð: Blikkandi ljós í myndinni gætu haft áhrif á ljósnæma áhorfendur.