Í þessu adrenalínþrungna ævintýri takast Optímus Prím og Vélráðarnir á við stærstu áskorunina hingað til. Þegar fram kemur ný ógn sem getur eytt allri plánetunni verða þeir að taka höndum saman við öflugan hliðarhóp sem kallast Maximals. Með örlög mannkyns á bláþræði munu Noah (Anthony Ramos) og Elena (Dominique Fishback) gera allt sem þarf til að hjálpa Transformers þegar þeir fara í lokabaráttuna til að bjarga jörðinni.