Nánar um þennan þátt

The Glee Project er bandarískur raunveruleikaþáttur sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Oxygen. Þættirnir eru áheyrnarprufur fyrir eitt sjö þátta gestahlutverk á Glee. Þættirnir áttu upprunalega að hefja sýningu seint í maí 2011 en voru seinkaðir um mánuð og hófu sýningu þann 12. júní 2011. Framleiðendur Glee, Ryan Murphy og Dante Di Loreto, eru einnig framleiðendur þessa þátta, og forstjóri leikaravals á Glee, Robert Ulrich, valdi þáttakendurna.