Nánar um þennan þátt

Criminal Minds: Suspect Behavior er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fjallar um lið alríkisfulltrúa sem tilheyra viðbragðsteymi innan Atferlisdeildar Bandarísku Alríkislögreglunnar sem staðsett er í Washington borg. Höfundarnir að þættinum eru Chris Mundy og Edward Allen Bernero.
Fyrsti þátturinn var sýndur 7. apríl 2010 í þættinum The Fight af Criminal Minds.
Þann 17.maí 2011 var tilkynnt að CBS hafi hætt við framleiðsluna af "Criminal Minds: Suspect Behavior" vegna lélegs áhorfs, en aðeins 13 þættir voru sýndir.