Þórðar saga hreðu er ein Íslendingasagnanna og talin með þeim yngri í þeim flokki. Líklegt þykir að hún sé rituð í kring um 1350. Sögusvið hennar er að mestu Miðfjörður í Húnaþingi og Skagafjörður.
Söguhetja bókarinnar er Þórður hreða eins og titillinn gefur til kynna. Þórður þessi flúði Noreg eftir að hafa vegið sjálfan Sigurð Gunnhildarson konung í Noregi. Settist hann svo að norður í landi og var hann orðaður við smíði margra nafnkunna húsa en hann reisti meðal annars skála Flatatungu í Skagafirði. Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
Fiction & literature
វាយតម្លៃសៀវភៅជាសំឡេងនេះ
ប្រាប់យើងអំពីការយល់ឃើញរបស់អ្នក។
ព័ត៌មានអំពីការស្ដាប់
ទូរសព្ទឆ្លាតវៃ និងថេប្លេត
ដំឡើងកម្មវិធី Google Play Books សម្រាប់ Android និង iPad/iPhone ។ វាធ្វើសមកាលកម្មដោយស្វ័យប្រវត្តិជាមួយគណនីរបស់អ្នក និងអនុញ្ញាតឱ្យអ្នកអានពេលមានអ៊ីនធឺណិត ឬគ្មានអ៊ីនធឺណិតនៅគ្រប់ទីកន្លែង។
កុំព្យូទ័រយួរដៃ និងកុំព្យូទ័រ
អ្នកអាចអានសៀវភៅដែលបានទិញនៅពេលកម្សាន្ត Google ដោយប្រើកម្មវិធីរុករកបណ្ដាញកុំព្យូទ័ររបស់អ្នក។