Hrafnkels saga Freysgoða er einna þekktust Austfirðingasagna. Hún segir frá Hrafnkatli sem átti hestinn Freyfaxa. Maður kallaður Einar smalamaður fór ekki að orðum Hrafnkels og stalst til að ríða hestinum. Fyrir þennan verknað þarf Einar að gjalda með lífi sínu. Dráp það hafði svo víðferm áhrif í kjölfarið.
Um fáar Íslendingasögur hefur verið jafn mikið skrifað og fjallað um og þessa nema þá helst Njálu. Þó sagan sé knöpp í samanburði við margar aðrar Íslendingasögur eru efnistök listræn og bygging hennar með þeim betri. Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
Ficció i literatura
Puntua aquest audiollibre
Dona'ns la teva opinió.
Informació sobre l'escolta
Telèfons intel·ligents i tauletes
Instal·la l'aplicació Google Play Llibres per a Android i per a iPad i iPhone. Aquesta aplicació se sincronitza automàticament amb el compte i et permet llegir llibres en línia o sense connexió a qualsevol lloc.
Ordinadors portàtils i ordinadors de taula
Pots llegir els llibres que compris a Google Play amb el navegador web de l'ordinador.