Við strendur Havaí hverfur hin íðilfagra ofurfyrirsæta Kim McDaniels eftir sundfatamyndatöku. Þegar foreldrar hennar komast að því að hún er horfin hoppa þau um borð í næstu flugvél til Havaí. En þau eru ekki ein um að leita Kim. Fyrrum lögreglumaðurinn og blaðamaðurinn Ben Hawkins er hvumsa yfir vanhæfni lögreglunnar á staðnum og fer af stað með sína eigin rannsókn. Á meðan er annar glæpur í undirbúningi og hryllingurinn sem paradís felur undir yfirborðinu kemur smám saman í ljós.
James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem efla læsi í skólum víða um Bandaríkin. Maxine Paetro er bandarískur rithöfundur. Hún er best þekkt fyrir bæði stakar bækur og seríur sem hún hefur skrifað með James Patterson.
A Google Playen vásárolt hangoskönyveidet a számítógép böngészőjében is meghallgathatod.
E-olvasók és más eszközök
E-tinta alapú eszközökön (például Kobo e-könyv-olvasón) való olvasáshoz le kell tölteni egy fájlt, és átvinni azt a készülékre. A Súgó részletes utasításait követve lehet átvinni a fájlokat a támogatott e-könyv-olvasókra.