Leikjavalið í júlí

Í hverjum mánuði bætist við fjöldi leikja á Play. Við í ritstjórn Play ætlum að deila nýju uppáhaldsleikjunum okkar til að hjálpa þér að velja. Leikir í kastljósinu hafa heillað okkur upp úr skónum með stórkostlegu myndefni, notendavænni spilun eða annarri snilld. Við erum þess fullviss að þú fellur fyrir leikjum mánaðarins.
Hjálpaðu halakörtum að komast í gegnum kóralrif í PoleTad. Þú þarft aðeins að snerta skjáinn til að láta hverja halakörtu hoppa á milli öruggra hafna, að því gefnu að ýmsar verur, hættur og skeyti verði ekki í vegi þeirra. Stýringarnar gætu ekki verið einfaldari en þú þarft að tímasetja allar hreyfingar fullkomlega til að koma litlu krúttunum yfir á næsta rif.
Ferðalagið um heillandi og fjölbreytta vatnaveröld PoleTad er dásemd frá upphafi til enda. Fagurfræðin er minímalísk og hönnun borðanna er sniðug.
Hvort sem þeir reyndu á, veittu okkur gleði, ró eða hræddu úr okkur líftóruna þá eru þetta leikirnir sem standa upp úr þennan mánuðinn.
Fyrir þau sem vilja eitthvað óhefðbundnara bendum við á safn bestu indíleikjanna þar sem skoða má bestu nýju indíleiki mánaðarins á Play.
Veltirðu fyrir þér hvaða leiki þú getur hlakkað til að spila næstu mánuðina? Skoðaðu forskráningarsafnið okkar og skráðu þig til að fá sérstök fríðindi og bónusa.