Ævintýri þitt á bílaleigubíl frá Avis byrjar hérna!
Með Avis-snjallforritinu er auðveldara en nokkru sinni áður að bóka bíl og sendiferðabíl í skemmri og lengri tíma. Leigðu bíl eða sendiferðabíl í örfáum einföldum skrefum og bíllinn mun svo bíða eftir þér á einni af 5.200 bílaleigustöðvum Avis í 165 löndum. Notaðu snjallforritið til að skrá þig í fríðindakerfi Avis, Avis Preferred, og njóttu enn fleiri valmöguleika og fríðinda.
GERAST MEÐLIMUR Í AVIS PREFERRED
Með því að gerast meðlimur einhvers fríðindakerfa okkar munt þú strax fá aðgang að forgangsbílaleiguþjónustunni okkar.
- Farðu fram fyrir í röðinni á bílaleigustöðinni með forunninni pappírsvinnu
- Bílaleigusamningar vistaðir í snjallforritinu
- Forskráðar upplýsingar þegar þú bókar í gegnum snjallforritið og á netinu
- Sjálfsafgreiðsluþjónusta sem er aðeins í boði fyrir meðlimi fríðindakerfa*
- Skoðaðu Avis Preferred-flokkun þína og fríðindi
- Fylgstu með hve miklu þú eyðir í leigu á bílum og leigusögu þinni
- Bættu við pöntunum sem þú bókaðir þegar þú varst ekki skráð/ur inn og safnaðu fleiri fríðindum
SJÁLFSAFGREIÐSLUÞJÓNUSTA
Aðeins i boði fyrir viðskiptavini Avis Preferred
- Veldu þann tiltekna bíl sem þú vilt leigja, breyttu honum eða uppfærðu hann þegar þú nálgast bílaleigustöðina
- Fáðu persónumiðaðar tilkynningar í rauntíma svo þú getir farið fram fyrir í röðinni og farið beint að bílnum þinum, lyklarnir bíða eftir þér á mælaborðinu (á völdum bílaleigustöðvum)
- Framlengdu leigutímann án þess að þurfa að hafa samband við bílaleigustöðina
* Sjálfsafgreiðsluþjónusta er í boði á helstu bílaleigustöðvum Avis víðsvegar um Evrópu
FINNDU BÍLINN ÞINN
- Skoðaðu hvaða bílar eða sendiferðabílar eru fáanlegir á þeim dagsetningum sem þú valdir (sendiferðabílar aðeins í boði á völdum bílaleigustöðvum)
- Síaðu niðurstöðurnar eftir stærð, gerð skiptingar og eiginleikum
- Veldu úr bílaleigustöðvum á flugvöllum, lestarstöðvum og í borgum. Við birtum lista yfir þær Avis bílaleigustöðvar sem eru næstar þér, og sýnum þær á korti
- Niðurstöðurnar sýna m.a. eiginleika bíla og verð miðað við að þú greiðir núna, eða síðar þegar þú sækir bílinn þinn
- Sjáðu ítarlega sundurliðun á öllu því sem er innifalið í verðinu
BÆTTU AUKABÚNAÐI EÐA -ÞJÓNUSTU VIÐ BÍILINN ÞINN
- Tryggingapakkar (á völdum bílaleigustöðvum)
- GPS
- Hreyfanlegt Wi-Fi
- Aukaökumenn
- Barnastólar
STJÓRNAÐU VÆNTANLEGUM BÓKUNUM ÞÍNUM
- Skoðaðu, aflýstu eða breyttu bókun þinni
- Uppfærðu bílinn eða sendiferðabílinn þinn
- Bættu við aukaökumönnum
- Veldu aukabúnað eða -þjónustu fyrir ferðina þína, svo sem barnastóla og GPS
Vinsamlegast lestu „Forritsleyfissamninginn“ sem hægt er að opna á þessari síðu til að lesa notkunarskilmála forritsins. Eftir Avis Budget Group Limited.