Chrome gerir þér kleift að nýta alla möguleika vefsins. Veldu hraðvirka og örugga vafrann frá Google.
NÝTTU ÞÉR ALLT ÞAÐ BESTA VIÐ GOOGLE Í CHROME
• LEITAÐU MEÐ AÐSTOÐ GOOGLE – Leitaðu á Google og fáðu svör í hvelli. Notaðu röddina til að leita handfrjálst.
• GOOGLE-LINSA – Notaðu myndavélina þína til að leita að því sem þú sérð í kringum þig.
• GOOGLE TRANSLATE – Skoðaðu vefinn á yfir 130 tungumálum. Þýddu heilu vefsvæðin með einum smelli.
VAFRAÐU AF FYRSTA FLOKKS ÖRYGGI
• AUKIN VÖRN – Vafraðu af öryggi með öruggustu vörnum sem Chrome hefur upp á að bjóða.
• ÖRYGGISATHUGUN – Öðlastu hugarró með forvirkum öryggisviðvörunum.
• GOOGLE-AÐGANGSORÐASTJÓRNUN – Búðu til og vistaðu aðgangsorð með öruggum hætti til að skrá þig inn í hvelli og fáðu viðvaranir ef aðgangsorðunum þínum er stofnað í hættu.
HAFÐU GREIÐAN AÐGANG AÐ CHROME Í HVAÐA TÆKI SEM ER
• SAMSTILLING Á MILLI TÆKJA – Vistaðu hlutina þína (til dæmis bókamerki, flipa og aðgangsorð) til að hafa greiðan aðgang að þeim þegar þú skráir þig inn í Chrome, hvort sem er í síma, tölvu eða spjaldtölvu.
• FLIPAHÓPAR – Búðu til flipahópa til að halda góðu skipulagi í öllum tækjunum þínum.
• SJÁLFVIRK ÚTFYLLING – Sparaðu þér tíma með því að fylla sjálfkrafa út vistaðar greiðsluupplýsingar, heimilisföng og aðgangsorð.
Framboð eiginleika er breytilegt eftir löndum og tungumálum. Samhæfi er breytilegt. Gakktu úr skugga um að svör séu rétt.