Fyrir tækin þín og hlutina
• Finndu símann þinn, spjaldtölvuna, heyrnartólin og aðra aukahluti á korti – jafnvel þótt tækin séu ekki nettengd.
• Spilaðu hljóð til að finna týnt tæki ef það er nálægt.
• Ef þú týnir tæki geturðu læst því eða núllstillt það um fjartengingu. Þú getur líka bætt sérsniðnum skilaboðum við til að birta á lásskjánum ef einhver finnur tækið þitt.
• Finndu tækin þín og hlutina í snjalltækjum og studdum Wear OS-tækjum.
• Öll staðsetningargögn í tengslaneti Leitarmiðstöðvar eru dulkóðuð. Þessi staðsetningargögn eru lokuð öðrum, þ.m.t. Google.
Fyrir staðsetningardeilingu
• Deildu staðsetningu þinni í rauntíma til að samræma hitting við vini eða athuga með fjölskylduna til að vera viss um að þau hafi komist heim heilu og höldnu.
Finndu tæki, önnur atriði og deildu staðsetningu með vinum og fjölskyldu.