Android-aðgengishjálp er safn aðgengisforrita sem gera fólki kleift að nota Android-tæki án þess að hafa augun á því eða með því að nota rofatæki.
Android-aðgengishjálp inniheldur eftirfarandi:
• Aðgengisvalmynd: Notaðu stóra valmynd á skjánum til að læsa símanum, stilla hljóðstyrk og birtustig, taka skjámyndir og fleira.
• Textaupplestur: Veldu atriði á skjánum til að heyra þau lesin upp.
• TalkBack-skjálesari: Fáðu raddsvörun, stjórnaðu tækinu með bendingum og sláðu inn texta með braille-lyklaborði á skjánum.
Til að hefjast handa:
1. Opnaðu stillingaforrit tækisins.
2. Veldu Aðgengi.
3. Veldu aðgengisvalmynd, textaupplestur eða TalkBack.
Tilkynning vegna heimilda
• Sími: Android-aðgengishjálp fylgist með stöðu símans svo hægt sé að laga tilkynningar að símtalastöðu.
• Aðgengisþjónusta: Þar sem þetta forrit er aðgengisþjónusta getur það séð aðgerðir þínar, sótt efni í gluggum og fylgst með texta sem þú slærð inn.
• Tilkynningar: þegar þú veitir þessa heimild getur TalkBack tilkynnt þér um uppfærslur.